Rafrænt hæfnimiðað stöðumat í íslensku sem öðru máli
Rafrænt hæfnimiðað stöðumat sem byggist á Evrópska tungumálarammanum einfaldar mat á íslenskukunnáttu, bæði fyrir innflytjendur og fagaðila sem framkvæma matið.
Stöðumat á íslenskukunnáttu innflytjenda nýtist menntakerfinu, atvinnulífinu en fyrst og fremst öllum þeim sem tala íslensku sem annað mál. Slíkt stöðumat er mikið hagsmunamál fyrir íslenskt samfélag og réttlætismál fyrir innflytjendur.
Hér má sjá dæmi um stöðupróf í íslensku á mismunandi stigum Evrópska tungumálarammans.